Caesar Guerini haglabyssurnar bjóða upp á allt í senn vandað handverk, nákvæmar framleiðsluaðferðir og úrvals efnivið sem ítalskir byssusmiðir eru frægir fyrir. Byssurnar eru þekktar fyrir áreiðanleika og góða frammistöðu jafnt við veiðar sem í keppni. Falleg vopn sem eru framleidd til að endast. Metnaðarfullur frágangur á öllum slitflötum.